fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Ronaldo fer í sérstaka meðferð á Spáni – Meiðslin alvarlegri en talið var í fyrstu

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 12. mars 2026 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cristiano Ronaldo er farinn í sérstaka meðferð í von um að ná sér fljótt af meiðslum með Heimsmeistaramótið framundan.

Portúgalska stórstjarnan meiddist í leik Al-Nassr gegn Al-Fahya í sádiarabísku deildinni þann 28. febrúar. Ronaldo þurfti að fara af velli í 3-1 sigri liðsins og síðar kom í ljós að hann hefði tognað í læri.

Þjálfari Al-Nassr, Jorge Jesus, sagði síðar að meiðslin hefðu reynst alvarlegri en fyrst var talið.

„Eftir rannsóknir sjáum við að meiðslin sem Cristiano Ronaldo varð fyrir eru alvarlegri en við héldum í fyrstu. Hann mun fara til Spánar í meðferð hjá sínum eigin sjúkraþjálfara og við vonum að hann snúi fljótt aftur,“ sagði Jesus.

Ronaldo er nú í Madrid þar sem hann gengst undir svokallaða pressotherapy-meðferð. Sú meðferð felur í sér að sérstök loftþrýstingsvél blæs upp búnað sem þrýstir á fætur eða aðra líkamshluta í takt, svipað og nudd.

Markmiðið er að draga úr bólgum, verkjum og flýta fyrir bata. Ronaldo deildi sjálfur mynd á samfélagsmiðlum þar sem hann sést í meðferðinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho
433Sport
Í gær

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?
433Sport
Í gær

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina
433Sport
Í gær

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“
433Sport
Í gær

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði