fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Hneykslaður á þeirri vegferð sem íslensku stelpurnar eru á – „Ég veit ekki hvort fólki sé bara sama“

433
Mánudaginn 9. mars 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikael Nikulásson, fyrrum knattspyrnuþjálfari og sérfræðingur Þungavigtarinnar er ekki hrifin af því sem er í gangi hjá kvennalandsliði Íslands sem tapaði 2-0 gegn Englandi um helgina.

Liðið tapaði 3-0 gegn Spáni í síðustu viku og kom varla skoti að marki í þessum tveimur leikjum. „Það eru tveir sigrar í sautján síðustu leikjum,“ sagði Mikael í Þungavigtinni í dag um stöðu kvennalandsliðsins.

Mikael tók svo dæmi um kvennalandsleik frá árinu 2017 þegar Ísland heimsótti Þýskaland.

„Það getur vel verið að menn komi brosandi heim eftir 5-0 tap samanlagt, þetta hefði átt að vera 20-0 sennilega. Fyrir átta árum síðan fór íslenska kvennalandsliðið gegn Þýskalandi og vann þar 3-2 sigur á útivelli. Þýska landsliðið á þeim tíma var ekki slakara en Spánn og England í dag, þær voru bestar í heimi ásamt Bandaríkjunum.“

„Þarna fara stelpurnar óhræddar, þetta var sanngjarn sigur. Þetta er ömurlegt í dag, það eru tveir sigrar í sautján leikjum. Við fáum ekki færi, förum ekki yfir miðju. Afsökunin er að við séum að spila gegn svo góðum liðum, það eiga að vera framfarir í íslenskum kvennafótbolta.“

Mikael telur að gera þurfi breytingar á leikmannahópi kvennalandsliðsins til að fá fram betri frammistöður.

„Það er verulega mikið að, ég veit ekki hvort fólki sé bara sama. Það er hneyksli að fara í tvo leiki með A-landslið og eiga eitt til tvö skot á markið í 180 mínútur. Þetta er bara djók, af hverju er liðið alltaf eins? Dóttir hans Hemma (Ída Marín Hermannsdóttir} kemur inn og er best í þessum glugga. Var enginn að spá í því að gera breytingar eftir Evrópumótið síðasta sumar þar sem við gerðum upp á bak. Það er búið að gefast upp fyrir fram,“ sagði Mikael.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho
433Sport
Í gær

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?
433Sport
Í gær

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina
433Sport
Í gær

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“
433Sport
Í gær

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði