fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Sagður spenntari fyrir Liverpool en United – Meistaradeildin gæti þó haft áhrif

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 9. mars 2026 13:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vinstri bakvörður Fulham, Antonee Robinson, er sagður á óskalista bæði Liverpool og Manchester United fyrir sumargluggann.

Samkvæmt enskum miðlum gæti bandaríski landsliðsmaðurinn verið fáanlegur fyrir um 25 milljónir punda. Talið er að Robinson myndi helst vilja ganga til liðs við Liverpool ef hann yfirgefur Fulham eftir tímabilið.

Robinson kom til Fulham frá Wigan árið 2020 og hefur verið afar mikilvægur. Hann er þekktur fyrir hraða sinn og að vera góður bæði sóknar- og varnarlega.

Liverpool vill sækja vinstri bakvörð í hóp sinn í sumar vegna fjarveru Andy Robertson á meðan United skoðar það að styrkja þessa stöðu vegna þrálátra meiðsla Luke Shaw.

Hvort félagið landar Robinson gæti ráðist af því hvort liðin tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina
433Sport
Í gær

Fyrrum dómari segir Arteta og hans menn hafa verið grátt leikna tvisvar í gær

Fyrrum dómari segir Arteta og hans menn hafa verið grátt leikna tvisvar í gær
433Sport
Í gær

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði
433Sport
Í gær

Simeone óð í leikmann Arsenal við leikmannagöngin eftir leik í gær – Myndband

Simeone óð í leikmann Arsenal við leikmannagöngin eftir leik í gær – Myndband