fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
433Sport

Svona er staða Íslands eftir fyrstu tvo leikina – Mikið undir á Laugardalsvelli í apríl

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 9. mars 2026 11:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska kvennalandsliðið tapaði 2-0 fyrir Englandi í Nottingham um helgina í öðrum leik sínum í undankeppni HM 2027. Það er þó enginn heimsendir.

Stelpurnar okkar höfðu tapað gegn Spáni, 3-0, nokkrum dögum áður og því án stiga í riðlinum. Það er Úkraína einnig, en það var í raun viðbúið. Bæði lið eru búin að leika við heims- og Evrópumeistara í fyrstu tveimur leikjum sínum.

Ísland verður nú að horfa til þess að vinna Úkraínu á heimavelli í næsta landsleikjaglugga, sem fram fer um miðjan apríl. Þar sem Ísland er í A-deild fer efsta lið riðilsins, sem verður að öllum líkindum England eða Spánn, beint á HM og hin þrjú í umspil. Það er þó til mikils að vinna að enda ekki í neðsta sæti undanriðilsins upp á að fá viðráðanlegri mótherja í umspilinu.

Baráttan um þetta þriðja sæti er á milli Íslands og Úkraínu, en íslenska liðið mætir einnig Englandi hér heima í næsta landsleikjaglugga. Í síðasta landsleikjaglugga undankeppninnar í júní mætir Ísland svo Úkraínu úti, sem verður einnig afar mikilvægur, sem og Spáni heima.

Markatölulega séð komst Ísland betur en Úkraína frá fyrstu tveimur leikjunum við Spán og England. Allt getur þetta skipt máli að lokum.

Ísland hefur aldrei farið á HM, þrátt fyrir að hafa komist á fimm Evrópumót í röð. Draumurinn er að takast það nú og fara með til Brasilíu þarnæsta sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Sagður spenntari fyrir Liverpool en United – Meistaradeildin gæti þó haft áhrif

Sagður spenntari fyrir Liverpool en United – Meistaradeildin gæti þó haft áhrif
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Tók VAR-skjáinn úr sambandi og setti allt í uppnám

Tók VAR-skjáinn úr sambandi og setti allt í uppnám
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Mourinho rekinn upp í stúku – Var stanslaust kallaður svikari

Mourinho rekinn upp í stúku – Var stanslaust kallaður svikari
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Guardiola hefur litlar áhyggjur af banninu

Guardiola hefur litlar áhyggjur af banninu
433Sport
Í gær

Ekki til í að hoppa til Bandaríkjanna á þessum tímapunkti

Ekki til í að hoppa til Bandaríkjanna á þessum tímapunkti
433Sport
Í gær

Tottenham byrjað að ræða við De Zerbi

Tottenham byrjað að ræða við De Zerbi