fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Xavi varpar sprengju – Segir forsetann hafa komið í veg fyrir skipti Messi

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 9. mars 2026 11:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum stjóri Barcelona, Xavi, segir að forseti félagsins, Joan Laporta, hafi komið í veg fyrir að Lionel Messi sneri aftur til félagsins árið 2023.

Í viðtali við La Vanguardia segir Xavi að allt hafi verið tilbúið fyrir endurkomu Messi frá Paris Saint‑Germain eftir heimsmeistaratitil Argentínu árið 2022.

„Leo var tilbúinn að koma. Við töluðum saman í nokkra mánuði og þegar hann hefði gefið mér endanlegt svar ætlaði ég að láta forsetann vita,“ sagði Xavi.

Hann fullyrðir að grænt ljós hafi fengist frá LaLiga, en að Laporta hafi á síðustu stundu hætt við samninginn.

Laporta hafnaði ásökununum og sagði að það hefði verið Messi og hans fólk sem ákvað að fara frekar til Inter Miami vegna þess að pressan í Barcelona væri of mikil.

Deilan kemur upp á sama tíma og Laporta sækist eftir endurkjöri sem forseti Barcelona, þar sem hann etur kappi við Victor Font.

Xavi hefur verið án starfs síðan hann lét af störfum hjá Barcelona.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho
433Sport
Í gær

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?
433Sport
Í gær

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina
433Sport
Í gær

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“
433Sport
Í gær

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði