fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Fókus

Leikarinn segir komið að leiðarlokum eftir að hafa kennt sér meins í baki og mjöðm undanfarið

Fókus
Laugardaginn 7. mars 2026 15:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikarinn Finnian Garbutt greindist með húðkrabbamein fyrir fjórum árum. Hann hefur nú deilt því á samfélagsmiðlum að hann sé að verða kominn á endastöð. Krabbameinið hefur dreift sér mikið og ljóst að það mun draga hann til dauða.

Finnian, sem hefur gert garðinn frægan í írsku lögguþáttunum Hope Street, segir á samfélagsmiðlum sínum að hann hafi fundið til í baki og mjöðm undanfarinn mánuð. Krabbameinsteymið hans ákvað að leggja leikarann inn og kanna hvað væri í gangi.

„Því miður hafa rannsóknir sýnt að krabbameinið hefur dreift sér hratt um líkama minn og ég er núna að keyra inn á síðasta vegkafla lífs míns. Ég deili þessu því það er mjög erfitt að segja öllum frá þessu í persónu og ég vona að nú þegar þetta er opinbert geti ég fengið að njóta tímans sem ég á eftir með fjölskyldu minni og vinum.“

Leikarinn er aðeins 28 ára gamall. Hann segir að frá því að hann greindist fyrst með meinið fyrir fjórum árum hafi hann náð að klára mikið af sínum helstu markmiðum í lífinu. Hann lék í vinsælum sjónvarpsþáttum, lék aðalhlutverk í kvikmynd, keypti sér fasteign, giftist eiginkonu sinni og eignaðist með henni barn.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Finnian Garbutt (@finnstagram20)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Íslensku lögin sem Laufey segir að allir verði að hlusta á

Íslensku lögin sem Laufey segir að allir verði að hlusta á
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þetta verður fyrsti viðburður Þjóðaróperunnar

Þetta verður fyrsti viðburður Þjóðaróperunnar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þetta er nýja 20 milljarða króna höllin hans Mark Zuckerberg

Þetta er nýja 20 milljarða króna höllin hans Mark Zuckerberg
Fókus
Fyrir 5 dögum

Stórstjarnan segist nú fullfær um krufningar

Stórstjarnan segist nú fullfær um krufningar
Fókus
Fyrir 6 dögum

Íslandsvinur höfðar mál gegn bæ í örvæntingarfullri tilraun til að bjarga mannorðinu

Íslandsvinur höfðar mál gegn bæ í örvæntingarfullri tilraun til að bjarga mannorðinu
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Ég held að það sé líka bara gott fyrir sálina að tala um þetta“

„Ég held að það sé líka bara gott fyrir sálina að tala um þetta“