fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Sat við hlið Kjartans og rifjaði upp þegar hann gerði honum óleik í viðtali – „Ég gleymi því aldrei“

433
Sunnudaginn 8. mars 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andri Már Eggertsson, Nablinn, og Kjartan Atli Kjartansson voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni.

Kjartan þjálfaði meistaraflokk Álftaness í körfubolta í efstu deild en hætti í vetur. Andri tók oft viðtöl við hann þar í starfi sínu fyrir Sýn.

„Ég held að ég sakni hans úr þjálfun meira en hann saknar þess að þjálfa. Mér þótti mjög gaman að því að taka viðtöl við hann og vera á leikjum þegar hann er að þjálfa. Maður er búinn að þekkja hann lengi og veit hvar maður hefur hann. Maður þarf aðeins að hafa fyrir hlutunum, myndi ekki komast upp með að læra ekki heima í viðtali við Kjartani Atla,“ sagði Andri.

video
play-sharp-fill

„Ég sakna þess ekki að fara í viðtal hjá Nablanum. Fyrsta spurning var alltaf mjög almenn og svo kemur neglan alltaf númer tvö,“ sagði Kjartan þá og hló.

„Ég gleymi því aldrei þegar ég var að taka viðtal fyrir einhvern leik og gleymdi að kveikja á hljóðnemanum svo það þurfti að taka upp byrjunina aftur. Þá spyr ég út í hvað hans menn þurfa að vera með á hreinu til að hafa kveikt á perunni og vera klárir.

Þá fór hann yfir það og líkti þessu svo við að vera spyrill í viðtali sem þarf að hafa kveikt á micnum. Þá þurfti maður að halda andliti því það veit enginn að hann var að gera grín að mér,“ sagði Andri og uppskar mikinn hlátur.

Umræðan er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fundarhöld um helgina
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum
Fundarhöld um helgina
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Nýr búningur United lekur á netið

Nýr búningur United lekur á netið
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Jóhann ómyrkur í máli – „Mér finnst þetta bara líta virkilega illa út“

Jóhann ómyrkur í máli – „Mér finnst þetta bara líta virkilega illa út“
433Sport
Í gær

Segja milljónamæringana á Akranesi engu hafa skilað í vor – „Gísli á að vera þeirra Aron Sig“

Segja milljónamæringana á Akranesi engu hafa skilað í vor – „Gísli á að vera þeirra Aron Sig“
433Sport
Í gær

Vonast eftir því að Tottenham falli – Sagðir með samkomulag við leikmann þeirra

Vonast eftir því að Tottenham falli – Sagðir með samkomulag við leikmann þeirra
433Sport
Í gær

Fyrrum dómari segir Arteta og hans menn hafa verið grátt leikna tvisvar í gær

Fyrrum dómari segir Arteta og hans menn hafa verið grátt leikna tvisvar í gær
433Sport
Í gær

Vilja ráða Bellamy í starfið

Vilja ráða Bellamy í starfið
Hide picture