fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Tekur upp hanskann fyrir Carrick og hjólar í goðsagnir United – Segir þá tala mikið en gera lítið

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 6. mars 2026 14:00

Patrice Evra. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Patrice Evra hefur gagnrýnt harðlega fyrrverandi liðsfélaga sína hjá Manchester United fyrir að gagnrýna Michael Carrick, núverandi bráðabirgðastjóra félagsins.

Evra nefndi sérstaklega Paul Scholes, Gary Neville og Roy Keane og sakaði þá um að reyna að „drepa feril“ Carrick með neikvæðum ummælum í fjölmiðlum. Þremenningarnir hafa undanfarið sagt að Carrick ætti ekki að fá starfið til frambúðar í sumar, þar sem þeir telja hann ekki hafa næga reynslu sem knattspyrnustjóri.

Scholes vakti nýlega athygli þegar hann kallaði frammistöðu Manchester United „hræðilega“ í færslu á Instagram eftir tap gegn Newcastle.

Evra, sem vann fimm enska meistaratitla með United, segir gagnrýnina ósanngjarna. „Ég vona að Instagram-færsla Scholes hafi verið fölsuð. Ég vona að einhver hafi brotist inn á aðganginn hans,“ sagði Evra.

Getty Images

Hann sagðist ekki skilja hvers vegna Carrick fengi ekki meiri stuðning frá fyrrverandi leikmönnum félagsins. „Michael er einn af okkur og hann er að gera mjög góða hluti. Ég skil ekki þessa neikvæðu umræðu frá Scholes, Roy Keane og Gary Neville,“ sagði Evra.

Frakkinn benti einnig á að gagnrýnendurnir hefðu sjálfir ekki náð miklum árangri sem knattspyrnustjórar. Hann rifjaði upp stutta og erfiða dvöl Gary Neville hjá Valencia.

„Ég sagði við Neville. Það er auðvelt að tala í sjónvarpi. Þegar þú varst hjá Valencia báðu þeir um paellu en þú gafst þeim fisk og franskar,“ sagði Evra í kaldhæðni.

Að hans mati ættu fyrrverandi leikmenn að fara varlega í gagnrýni. „Sem leikmenn eru þeir goðsagnir, en sem stjórar hafa þeir ekki náð miklum árangri. Þess vegna er of mikið að tala svona og mögulega skaða feril annars þjálfara,“ sagði Evra.

Carrick hefur stýrt United tímabundið eftir að Ruben Amorim var rekinn fyrr á árinu og er félagið enn að skoða hver eigi að taka við liðinu til frambúðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho
433Sport
Í gær

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?
433Sport
Í gær

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina
433Sport
Í gær

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“
433Sport
Í gær

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði