fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Messi mætti til fundar með Trump í gær – Ræðuhöld forsetans vekja mikla athygli

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 6. mars 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lionel Messi var viðstaddur athöfn í Hvíta húsinu í Washington á fimmtudag þegar lið hans, Inter Miami, var heiðrað fyrir að vinna MLS-bikarinn í fyrsta sinn í sögu félagsins. Athöfnin vakti þó einnig athygli fyrir ummæli forseta Bandaríkjanna, Donald Trump.

Messi, sem hefur unnið Gullboltann átta sinnum og er af mörgum talinn einn besti knattspyrnumaður allra tíma, gekk út á svið ásamt Trump og stóð við hlið hans á meðan forsetinn hélt ræðu. Í upphafi ræðunnar ræddi Trump meðal annars um átök í Mið-Austurlöndum og sagði að bandaríski herinn, ásamt bandamönnum í Ísrael, væri að „eyðileggja eldflaugakerfi Írans“.

Messi hlustaði á ræðuna ásamt liðsfélögum sínum sem stóðu á sviðinu við athöfnina. Trump sneri sér síðar að fótboltanum og hrósaði argentínska stjörnunni sérstaklega.

„Sonur minn Barron spurði mig hvort ég vissi hver yrði hér í dag. Hann sagði: ‘Messi!’ Hann er mikill aðdáandi þinn og telur þig vera frábæran leikmann,“ sagði Trump.

Forsetanum varð einnig tíðrætt um langvarandi keppinaut Messi, portúgalska framherjann Cristiano Ronaldo. „Hann er mikill fótboltaaðdáandi og mikill aðdáandi þinn  og líka manns sem heitir Ronaldo,“ bætti Trump við í ræðu sinni.

Athöfnin var haldin til að fagna fyrsta MLS-titli Inter Miami, sem Messi hefur átt stóran þátt í síðan hann gekk til liðs við félagið. Þetta var í fyrsta sinn sem Messi heimsótti Hvíta húsið.

Á síðasta ári gat hann ekki mætt þegar honum var boðið að taka við Freedom-orðunni frá þáverandi forseta Joe Biden, þar sem hann sagðist hafa verið upptekinn vegna annarra skuldbindinga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fundarhöld um helgina
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum
Fundarhöld um helgina
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Nýr búningur United lekur á netið

Nýr búningur United lekur á netið
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Jóhann ómyrkur í máli – „Mér finnst þetta bara líta virkilega illa út“

Jóhann ómyrkur í máli – „Mér finnst þetta bara líta virkilega illa út“
433Sport
Í gær

Segja milljónamæringana á Akranesi engu hafa skilað í vor – „Gísli á að vera þeirra Aron Sig“

Segja milljónamæringana á Akranesi engu hafa skilað í vor – „Gísli á að vera þeirra Aron Sig“
433Sport
Í gær

Vonast eftir því að Tottenham falli – Sagðir með samkomulag við leikmann þeirra

Vonast eftir því að Tottenham falli – Sagðir með samkomulag við leikmann þeirra
433Sport
Í gær

Fyrrum dómari segir Arteta og hans menn hafa verið grátt leikna tvisvar í gær

Fyrrum dómari segir Arteta og hans menn hafa verið grátt leikna tvisvar í gær
433Sport
Í gær

Vilja ráða Bellamy í starfið

Vilja ráða Bellamy í starfið