fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
433Sport

Sjónvarpskonan vinsæla var orðlaus í beinni – „Mesta óvirðing sem ég hef heyrt“

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 6. mars 2026 10:30

Laura Woods. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjónvarps- og útvarpsstjarnan Laura Woods gagnrýndi fyrrverandi knattspyrnustjórann Alan Pardew harðlega eftir ummæli hans um Arsenal og mögulegan Englandsmeistaratitil liðsins.

Pardew, sem var í lýsingu hjá talkSPORT þegar Arsenal vann Brighton og jók forskot sitt á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í sjö stig, sagði að titill Arsenal gæti fengið „stjörnumerkingu“ vegna þess hvernig liðið vinnur leiki.

Arsenal er nú í mjög sterkri stöðu í toppbaráttunni, sérstaklega eftir að Manchester City tapaði stigum gegn Nottingham Forest á miðvikudag. Þrátt fyrir það hefur liðið fengið gagnrýni fyrir leikstíl sinn, þar sem mörg mörk hafa komið eftir föst leikatriði og sumir telja liðið beita svokölluðum „brögðum“ til að tryggja sér úrslit.

Pardew sagði að þó Arsenal væri faglegt og sterkt lið væri lítið fallegt við leik þeirra.

„Þeir gera allt sem þarf til að klára leiki. Það lítur út fyrir að Arsenal klári þetta tímabil en það verður stjarna við nafnið þeirra,“ sagði Pardew.

Woods, sem er mikill stuðningsmaður Arsenal, lét hins vegar heyra í sér í útvarpsþætti og gagnrýndi orð hans.

„Alan, ég kann vel við þig en þetta er mesta vanvirðing sem ég hef nokkurn tímann heyrt,“ sagði Woods.

„Ef Arsenal vinnur titilinn er okkur stuðningsmönnum alveg sama hvernig það gerist.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Þreyttur á óvissunni hjá Tottenham og íhugar flutninga heim

Þreyttur á óvissunni hjá Tottenham og íhugar flutninga heim
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Meira en helmingur liða hófu leik með mínusstig

Meira en helmingur liða hófu leik með mínusstig
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Sagður spenntari fyrir Liverpool en United – Meistaradeildin gæti þó haft áhrif

Sagður spenntari fyrir Liverpool en United – Meistaradeildin gæti þó haft áhrif
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Tók VAR-skjáinn úr sambandi og setti allt í uppnám

Tók VAR-skjáinn úr sambandi og setti allt í uppnám
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Guardiola hefur litlar áhyggjur af banninu

Guardiola hefur litlar áhyggjur af banninu
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Sagði stanslaust kynlíf með eiginmanninum hafa þessi áhrif – Kveðst sjá eftir ummælum sínum

Sagði stanslaust kynlíf með eiginmanninum hafa þessi áhrif – Kveðst sjá eftir ummælum sínum
433Sport
Í gær

Gæsahúðaraugnablik Íslendingsins – „Hann er mjög vel liðinn“

Gæsahúðaraugnablik Íslendingsins – „Hann er mjög vel liðinn“
433Sport
Í gær

Ekki til í að hoppa til Bandaríkjanna á þessum tímapunkti

Ekki til í að hoppa til Bandaríkjanna á þessum tímapunkti