fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Arteta kaldhæðinn í svörum – Gaf í skyn að hann tæki ekki mikið mark á gagnrýni frá þessum manni

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 5. mars 2026 19:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjóri Arsenal, Mikel Arteta, svaraði gagnrýni frá Fabian Hurzeler, stjóri Brighton, á kaldhæðnislegan hátt eftir 0-1 sigur í gær.

Bukayo Saka skoraði eina mark leiksins og tryggði Arsenal sjö stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, því Manchester City tapaði stigum á sama tíma.

Eftir leikinn gagnrýndi Hurzeler leikstíl Arsenal og gaf í skyn að liðið tefði leikinn. „Það var aðeins eitt lið sem reyndi að spila fótbolta í dag,“ sagði hann og benti meðal annars á að markvörður Arsenal hefði legið nokkrum sinnum á vellinum.

Þegar þessi ummæli voru borin undir Arteta svaraði hann stuttlega: „Alveg svakalega kemur það á óvart (að Hurzeler sé að gagnrýna liðið).“

Spánverjinn neitaði að fara nánar út í málið, en þegar hann var spurður hvort hann skipti sér af því sem aðrir stjórar segðu svaraði hann: „Það fer eftir athugasemdinni, manneskjunni og tilganginum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho
433Sport
Í gær

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?
433Sport
Í gær

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina
433Sport
Í gær

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“
433Sport
Í gær

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði