fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Kaldar kveðjur frá Brooklyn til foreldra sinna – Ánægður með eiginkonu sína

433
Fimmtudaginn 5. mars 2026 11:00

Brooklyn Beckham, Nicola Peltz, Victoria Beckham og David Beckham.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brooklyn Beckham fékk glæsilega afmælisgjöf frá eiginkonu sinni Nicola Peltz á sama tíma og spennan virðist enn ríkja á milli hans og fjölskyldu hans.

Peltz, sem er fyrirsæta og leikkona, deildi myndum á Instagram þar sem sjá mátti veglega afmælisuppákomu fyrir eiginmann sinn sem varð 27 ára. Þar mátti sjá gullblöðrur, blóm, gjafir og bleika kleinuhringi sem mynduðu skilaboðin „Happy Birthday, Brooklyn“.

Brooklyn virtist ánægður með óvænta uppákomuna og sagði meðal annars: „Vá, þetta er flott,“ þegar hann sá afmælisuppsetninguna.

Fyrr sama dag höfðu foreldrar hans, David og Victoria Beckham, einnig sent honum opinberar afmæliskveðjur á samfélagsmiðlum þrátt fyrir að samband þeirra hafi verið stirt undanfarið. David birti gamla mynd af Brooklyn og skrifaði. „27 í dag. Til hamingju með afmælið, Bust. Við elskum þig.“

Victoria birti einnig kveðju þar sem hún skrifaði. „Til hamingju með afmælið Brooklyn, við elskum þig svo mikið.“

Brooklyn virtist ekki hafa neinn áhuga á þessum kveðjum og endurbirti þær ekki á Instagram síðu sinni. Samkvæmt fjölmiðlum hefur Brooklyn óskað eftir því að foreldrar hans hafi ekki opinber samskipti við sig og að þau hafi aðeins samband í gegnum lögfræðing hans.

Brooklyn vakti einnig athygli í janúar þegar hann greindi frá áframhaldandi deilum innan fjölskyldunnar og sagðist ekki hafa áhuga á að sættast að svo stöddu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho
433Sport
Í gær

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?
433Sport
Í gær

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina
433Sport
Í gær

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“
433Sport
Í gær

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði