fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Eva Rún og Jón Kalman tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 12:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eva Rún Snorradóttir og Jón Kalman Stefánsson eru tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026.

Það sem sameinar verkin 13 sem tilnefnd eru í ár er að þau horfa til fortíðar en eru um leið nátengd Norðurlöndum nútímans. Þau fjalla um foreldra og börn, kyn og kynvitund og einstaklinginn sem rekur stefnulaust í fljótandi heimi.

Á meðal hinna tilnefndu eru bæði skáldsögur, ljóðasöfn og smásagnasafn. Það sem er óvenjulegt í ár er að bæði norska dómnefndin og dómnefndin fyrir samíska málsvæðið hafa hvert í sínu lagi tilnefnt sama verkið sem í senn er gefið út á norsku og á tornesamísku.

Tilnefningarnar:

Danmörk

Mette Moestrup: Butterfly Nebula, ljóðabók, Gyldendal, 2025.

Charlotte Weitze: Ulvemælk, skáldsaga, Forlaget Gutkind, 2025.

Finnland

Pirkko Saisio: Suliko, skáldsaga, Siltala, 2024.

Quynh Tran: När andra njuter, skáldsaga, Förlaget / Albert Bonniers förlag, 202…

Færeyjar

Marjun Syderbø Kjelnæs: Marta, Marta, skáldsaga, Ungu Føroyar, 2024.

Grænland

Debora H. Kleist: Sarsuatitat, skáldsaga, Milik Publishing, 2024.

Ísland

Eva Rún Snorradóttir: Eva Rún Snorradóttir, Eldri konur, skáldsaga, Benedikt, 2…

Jón Kalman Stefánsson: Himintungl yfir heimsins ystu brún, skáldsaga, Benedikt,…

Noregur

Dag Johan Haugerud: Sjelesorg, skáldsaga, Forlaget Oktober, 2025.

Noregur / samíska málsvæðið

Sigbjørn Skåden: Planterhaug / Láŋtdievvá, skáldsaga, Cappelen Damm, 2025

Svíþjóð

Anna Hallberg: AN, ljóðabók, Albert Bonniers förlag, 2025.

Linda Örtenblad: Kartotek över döda och återuppståndna, smásagnasafn, Nirstedts…

Álandseyjar

Sebastian Johans: Svanhopp. Roman om död far, skáldsaga, Nirstedt/litteratur, 2…

Tilkynnt um verðlaunahafann 20. október

Verðlaunahafi bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026 verður opinberaður hinn 20. október. Verðlaunagripurinn verður veittur í tengslum við Norðurlandaráðsþing í Helsinki hinn 27. október. Verðlaunin nema 300 þúsundum danskra króna.

Um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt síðan 1962 fyrir fagurbókmenntaverk sem samið er á einu af norrænu tungumálunum. Það getur verið skáldsaga, leikverk, ljóðabók, smásagna- eða ritgerðasafn sem uppfyllir strangar kröfur um bókmenntalegt og listrænt gildi.

Markmið hinna fimm verðlauna Norðurlandaráðs er að auka áhuga á norrænu menningarsamfélagi og samstarfi um umhverfismál, svo og að vekja athygli á verkefnum sem skarað hafa fram úr á sviði lista eða umhverfismála.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“
Fréttir
Í gær

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart