fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Laufey hættir hjá bókunaraðilanum í skugga Epstein málsins

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 10:30

Laufey vann Grammyverðlaun á dögunum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarkonan Laufey hefur sagt skilið við bókunaraðilann Wasserman. Tengsl eigandands Casey Wasserman við Jeffrey Epstein hafa komið upp á undanförnum vikum.

The Hollywood Reporter greinir frá þessu.

Í frétt miðilsins kemur ekki beinlínis fram hvort að Laufey hafi hætt hjá bókunarskrifstofunni vegna tengsla við barnaníðinginn Epstein eða að öðrum ástæðum. En Wasserman tilkynnti að hann hygðist selja stofuna síðastliðinn föstudag.

Laufey hefur ekkert tjáð sig opinberlega um málið. Hún er núna á tónleikaferðalagi um Evrópu.

Sjá einnig:

Laufey hlaut Grammyverðlaun aftur!

Talið er að brotthvarf Laufeyjar séu mjög slæmar fréttir fyrir Wasserman sem vill halda eins mörgum stórstjörnum á samning og hægt er fyrir söluna. En á meðal annarra stjarna þar má nefna söngkonuna Chapelle Roan sem nýlega tilkynnti að hún ætlaði að hætta hjá Wasserman vegna Epstein tengslanna.

„Enginn listamaður, fulltrúi eða starfsmaður ætti nokkurn tímann að þurfa að verja eða horfa fram hjá gjörðum sem stangast svo djúpt á við okkar eigið siðferði,“ sagði Roan í yfirlýsingu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís
Fókus
Fyrir 5 dögum

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum