fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Inntökureglur í Menntó

Eyjan
Laugardaginn 20. desember 2025 06:00

Mynd/MR

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég áttaði mig snemma á því að ég hafði enga hæfileika á sviði íþrótta og tónlistar. Um árabil stundaði ég æfingar hjá knattspyrnufélaginu Fram við gamla Sjómannaskólann. Ég náði aldrei neinum árangri heldur tilheyrði svokölluðu „rusli“ sem enginn vildi hafa með sér í liði. Margar sárar bernskuminningar tengjast Framvellinum þar sem ég var venjulega einn og utangátta. Smám saman hætti ég að mæta þótt ég verði alltaf Framari í hjartanu. Alls konar niðurlæging tengdist líka leikfimissalnum í Lauganesskólanum. Ég sat fastur á hestinum miðjum og komst aldrei upp kaðlana. Mér var ókleift að fara kollhnís.

Sömu sögu er að segja af píanónáminu. Ég fór vikulega í píanótíma upp á Lokastíg en kennarinn varð alltaf fyrir sárum vonbrigðum. Eftir tveggja vetra þjáningar lauk tónlistarnámi. Einu sinni reyndi ég að syngja í skátakórnum á sumardaginn fyrsta í Fríkirkjunni. Stjórnandinn benti á mig einan á fyrstu æfingunni og sagði að ég mætti fara heim. Ég fór ofan af kirkjuloftinu með tárin í augunum og kom aldrei aftur.

Smám saman áttaði ég mig á því að hæfileikar mínir lágu annars staðar. Mér gekk vel að læra og fékk ágætar einkunnir. Þetta skilaði mér beina boðleið inn í menntaskóla eftir landspróf og þaðan í Háskóla.

Nú berast þau tíðindi frá menntamálaráðuneytinu að námsárangur einn og sér gagnist engum lengur. Önnur atriði eins og félagsstörf, íþróttir og tónlist, kyn, kynhneigð, litarháttur og uppruni skipti meira máli samkvæmt óskiljanlegu kvótakerfi. Ég hefði því sennilega setið eftir í skólakerfinu, eins og á Framvellinum forðum, hefðu þessar reglur verið í gildi þegar ég hóf menntaskólanám.

Reyndar hitti ég Gretti Ásmundsson vandræðaungling á dögunum. Hann var kampakátur yfir þessu nýja kerfi. „Ég flýg inn í menntaskóla vegna góðrar frammistöðu í manndrápum og bardagaíþróttum. Drangeyjarsund og glíma við drauga gefa mér margar einingar. Þannig verð ég kominn með stúdentspróf langt á undan þér, auminginn þinn,“ sagði hann glottandi og hrinti mér í götuna og sparkaði í mig. „Fyrir þetta fæ ég aukabónus,“ sagði hann. „Það er sérlega vel séð í menntamálaráðuneytinu að beita góða námsmenn ofbeldi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Engin dýrtíð á Vopnafirði – allt skrifað

Þorsteinn Pálsson skrifar: Engin dýrtíð á Vopnafirði – allt skrifað
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Slíta ber tengslin við Ísrael

Sigmundur Ernir skrifar: Slíta ber tengslin við Ísrael
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Nútímamegrun

Óttar Guðmundsson skrifar: Nútímamegrun
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Stóra spurningin er hvort við gætum haft það betra

Sigmundur Ernir skrifar: Stóra spurningin er hvort við gætum haft það betra
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Innganga nýrra ríkja í ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Innganga nýrra ríkja í ESB
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Thomas Möller skrifar: Með eða á móti ESB – hver hefur rétt fyrir sér?

Thomas Möller skrifar: Með eða á móti ESB – hver hefur rétt fyrir sér?
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Björn Jón skrifar: Málfarspistill

Björn Jón skrifar: Málfarspistill
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum
Jón Gnarr skrifar: Frelsi