fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Seðlabankinn lækkar stýrivexti – „Spennan í þjóðarbúinu virðist horfin“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 19. nóvember 2025 08:42

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 7,25%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum.

Í henni er bent á að verðbólga hafi verið 4,3% í október og aukist um 0,2 prósentur frá mánuðinum á undan. Hún hefur haldist í um 4% í tæpt ár. Þá sýni undirliggjandi verðbólga áþekka þróun.

„Hægt hefur á vexti innlendrar eftirspurnar í takt við þétt taumhald peningastefnunnar og vísbendingar um viðsnúning í efnahagsumsvifum verða æ greinilegri. Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans virðist spennan í þjóðarbúinu horfin og útlit er fyrir að það hægi meira á hagvexti en áður var talið. Þar vegur þungt röð áfalla sem hafa skollið á útflutningsgreinum en ekki síður það umrót sem hefur skapast á innlendum lánamarkaði í kjölfar nýlegs dóms Hæstaréttar. Samkvæmt spá bankans hjaðnar verðbólga því hraðar en áður hafði verið gert ráð fyrir. Launahækkanir eru þó enn töluverðar og verðbólguvæntingar mælast enn yfir markmiði. Óvissa er því áfram mikil,“ segir í tilkynningu nefndarinnar.

Þá kemur fram að það umrót sem hefur orðið á innlendum lánamarkaði sé líklegt til þess að þrengja að lánakjörum og fjármálalegum skilyrðum heimila þótt raunvextir Seðlabankans hafi lítið breyst. Í því ljósi telji nefndin rétt að lækka vexti bankans til að vega á móti þeirri herðingu á taumhaldi sem umrótinu fylgir.

„Frekari ákvarðanir um lækkun vaxta bankans eru hins vegar háðar því að skýrar vísbendingar komi fram um að verðbólga sé að hjaðna í 2½% markmið bankans. Mótun peningastefnunnar næstu misseri mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Jón Gnarr fékk ekki greitt fyrir atriðið eins og fullyrt var í Morgunblaðinu – „Óvönduð blaðamennska“

Jón Gnarr fékk ekki greitt fyrir atriðið eins og fullyrt var í Morgunblaðinu – „Óvönduð blaðamennska“
Fréttir
Í gær

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigríður var alein við Hlemm – „Út á hvað gengur þetta?“

Sigríður var alein við Hlemm – „Út á hvað gengur þetta?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Baldur leysir Herjólf af tímabundið

Baldur leysir Herjólf af tímabundið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lindex útvegar Kvennaathvarfinu náttföt, nærföt og sokka

Lindex útvegar Kvennaathvarfinu náttföt, nærföt og sokka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framboðið snúist ekki um lögheimilisskráningar – „Það þurfa allir að vera með rödd til að geta bætt og lagað sveitarfélagið“

Framboðið snúist ekki um lögheimilisskráningar – „Það þurfa allir að vera með rödd til að geta bætt og lagað sveitarfélagið“