Það er hægt að koma í veg fyrir að þjófar fái aðgang að stolnum síma og tekur það aðeins nokkrar sekúndur en því fer fjarri að allir hugi að þessum þætti. Það er því ólíklegt að maður sjái símann sinn aftur ef honum er stolið, sérstaklega ef haft er í huga hvar flestir þeirra virðast enda.
Flestir iPhone eru framleiddir í Kína og „góðu fréttirnar“ eru kannski þær að stolnir símar „fara heim“, að minnsta kosti mjög margir þeirra. Financial Time segir að margir stolnir símar hafi verið staðsettir í sömu byggingunni í Shenzhen í Kína og er hún stundum nefnd „bygging hinna stolnu iPhone“.
Tekið er dæmi um iPhone eiganda sem varð fyrir því að símanum var stolið úr hönd hans á götu úti. Hann gat síðan fylgst með 10.000 km ferðalagi símans til umræddrar byggingar. Þar er boðið upp á viðgerðir og uppfærslur á farsímum.
Þegar síminn var kominn á áfangastað stillti eigandinn símann á „stolinn eða tapaður“ sem gerir hann ónothæfan. Í kjölfarið bárust honum hótanir: „Gamli iPhone síminn þinn er endurnýttur af okkur. Við stundum bara viðskipti með notaðar vörur og erum ekki þeir sem stálu símanum þínum,“ sagði meðal annars í skilaboðunum til mannsins.
„Ef þú opnar ekki símann, þá verða gömlu grunnkort símans seld öðrum sem munu kannski brjótast inn í símann þinn, stela greiðslukortaupplýsingum eða hafa samband við fjölskylduna þína. Við ráðleggjum þér því að þú opnir símann eins skjótt og hægt er svo við getum endurskapað verksmiðjustillingarnar og eytt öllum gögnum,“ fylgdi einnig með í skilaboðunum.
Þetta er auðvitað bara tilraun til að blekkja fólk, því miður falla margir fyrir þessu, því það er ekki hægt að stela persónulegum gögnum úr læstum iPhone.