Cole Palmer mun ekki klæðast treyju númer 20 á næsta tímabili líkt og hann hefur gert undanfarin tvö ár.
Palmer hefur fengið nýtt númer hjá Chelsea sem er tían en hann er einn allra mikilvægasti ef ekki mikilvægasti leikmaður enska stórliðsins.
Palmer verður í tíunni næsta vetur en það númer var áður í eigu Mykhailo Mudryk sem hefur ekkert spilað síðustu mánuði.
Mudryk er undir rannsókn eftir að hafa fallið á lyfjaprófi og eru góðar líkur á að ferli hans hjá Chelsea sé lokið.
Mudryk gæti átt yfir höfði sér fjögurra ára bann en hann kostaði enska liðið um 90 milljónir punda fyrir um þremur árum.