fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
433Sport

Segir galið að fólk efist um að Carrick sé rétti maðurinn til frambúðar

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 13. mars 2026 19:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum framherjinn Michael Owen segir að það sé ótrúlegt að fólk efast um hvort Michael Carrick eigi að fá starf knattspyrnustjóra Manchester United til frambúðar.

Carrick tók tímabundið við liðinu í janúar eftir að Ruben Amorim var rekinn. Undir hans stjórn hefur United unnið sex af átta leikjum og liðið hefur farið úr sjötta sæti upp í það þriðja í úrvalsdeildinni.

Owen, sem lék með Carrick hjá United á árunum 2009 til 2012, segir að fyrrum miðjumaðurinn hafi komið með ró aftur í félagið.

„Ég trúi ekki að fólk sé að spyrja sig hvort hann eigi að fá starfið. Ef hann endar með liðið í þriðja sæti, hvernig er þá hægt að segja: takk en nei takk?“, sagði Owen í hlaðvarpinu The Wayne Rooney Show.

Wayne Rooney tók undir með Owen og hrósaði Carrick fyrir störf sín.

„Allir hjá Manchester United elska Michael Carrick. Hann hefur gert ótrúlega hluti,“ sagði Rooney.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Þetta er raunveruleg ástæða þess að Maguire fékk lengra bann

Þetta er raunveruleg ástæða þess að Maguire fékk lengra bann
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Segir frá því af hverju Ronaldo henti honum út af Instagram

Segir frá því af hverju Ronaldo henti honum út af Instagram
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Vini Jr urðaði yfir Bellingham – „Haltu kjafti og lokaðu á þér munninum“

Vini Jr urðaði yfir Bellingham – „Haltu kjafti og lokaðu á þér munninum“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Stjarna Arsenal fékk stórfurðulega spurningu eftir að liðið komst áfram í gær – Myndband

Stjarna Arsenal fékk stórfurðulega spurningu eftir að liðið komst áfram í gær – Myndband
433Sport
Í gær

Þarf að sætta sig við hressilega launalækkun í sumar

Þarf að sætta sig við hressilega launalækkun í sumar