fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Dyche ekki mjög spenntur fyrir starfinu hjá Tottenham

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 13. mars 2026 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sean Dyche er einn þeirra sem Tottenham Hotspur íhugar sem mögulegan arftaka Igor Tudor ef félagið ákveður að skipta um bráðabirgðastjóra á næstunni, samkvæmt fréttum Independent. Hann er hins vegar ekki spenntur fyrir starfinu.

Dyche, sem áður stýrði meðal annars Everton og Burnley, er talinn hafa þá reynslu sem þarf til að taka við liðinu á erfiðum tíma. Hins vegar er sagt að 54 ára stjórinn sé ekki sérstaklega áhugasamur um starfið nema honum verði boðinn samningur sem nær lengra en út yfirstandandi tímabil.

Tottenham er enn að meta stöðu Tudos, sem tók við liðinu nýlega, en árangur liðsins hefur valdið áhyggjum innan félagsins.

Samkvæmt Talksport eru fleiri nöfn einnig til skoðunar hjá Spurs. Þar á meðal eru fyrrum leikmenn félagsins Robbie Keane og Ryan Mason, sem báðir hafa tengingu við félagið og gætu komið til greina sem bráðabirgðastjórar.

Forráðamenn Tottenham hafa þó ekki tekið endanlega ákvörðun um næstu skref varðandi stjórastöðuna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho
433Sport
Í gær

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?
433Sport
Í gær

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina
433Sport
Í gær

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“
433Sport
Í gær

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði