fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Segir Rúnar Kristins hafa þurft að slökkva elda á síðasta ári – „Been there done it, bought the T-shirt. Haldiði kjafti“

433
Þriðjudaginn 10. mars 2026 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er aðeins mánuður í það að Besta deild karla fari af stað og mikil spenna farin að byggjast upp fyrir mótinu. Rætt var um deildina í útvaprsþætti Fótbolta.net á X977 á laugardag.

Eitt af því sem var rætt var staða Fram en þjálfari liðsins er hinn margreyndi, Rúnar Kristinsson. Rúnar er á leið inn í sitt þriðja tímabil með Fram og hefur gert vel í starfi.

„Við erum mikið af þjálfurum með takmarkaða reynslu í liðunum sem er spáð fyrir ofan þá, Rúnar hefur séð þetta allt,“ sagði Haraldur Árni Hróðmarsson, fyrrum þjálfari Grindavíkur í þættinum.

Tómas Þór Þórðarson sem er öllum hnútum kunnugur í íslenska boltanum segir Rúnar hafa þurft að taka á erfiðum málum í fyrra hjá Fram, þar hafi reynsla hans og virðing skipt sköpum.

„Það var fullt í gangi underground í Dal draumanna í fyrra, sem hann þurfti að kæfa og slökkva elda. Við vitum aðeins meira en meðalmaðurinn, við tipluðum á þessu,“ sagði Tómas sem er í dag starfandi fyrir þingflokk Sjálfstæðisflokksins.

„Við erum ekki í þessu til að eyðileggja fyrir liðunum, það var fullt í gangi sem hann tók á. Been there done it, bought the T-shirt. Haldiði kjafti, ég er Rúnar Kristins,“
sagði Tómas.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Í gær

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Í gær

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Í gær

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra