fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Rosaleg tekjuaukning í Vesturbæ með tilkomu Óskars Hrafns – Útgjöld jukust um 120 milljónir á síðasta ári

433
Föstudaginn 27. febrúar 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ljóst er að KR hefur tekist að taka hressilega til í rekstri sínum eftir nokkur erfið ár. Samkvæmt ársreikningi hagnaðist félagið um tæpar 36 milljónir króna á síðasta ári.

Er þetta annað árið í röð sem félagið skilar hagnaði. Skuldir deildarinnar eru þó nokkuð háar eða um 130 milljónir króna. Skammtímaskuldir deildarinnar hækka um rúmar 40 milljónir króna á milli ára. Þó á félagið 118 milljónir króna inni í viðskiptakröfum og öðrum skammtímakröfum.

Tekjur deildarinnar aukast rosalega á milli ára, voru þær árið 2024 384 milljónir en fara upp í 524 milljónir á milli ára. Mestu munar um aukningu í auglýsingum og samstarfsaðilum, tekjurnar voru rúmar 80 milljónir árið 2024 en fóru yfir 173 milljónir á síðasta ári.

Meira:
Jafnvægi í rekstrinum í Úlfarársdal: Tekjur lækkuðu og útgjöld jukust til muna – Samt var hagnaður á rekstri
Svart ský yfir rekstrinum í Garðabæ: Laun hækkuðu rosalega – Tapið á síðasta ári yfir 80 milljónir
Blómlegur rekstur á Hlíðarenda: Aukning í tekjum og góður hagnaður – Laun hækka talsvert á milli ára
Góðæri á Akranesi: Góður hagnaður þrátt fyrir miklar launahækkanir á milli ára

Bendir margt til þess að efnaðir KR-ingar hafi viljað setja fjármuni í karlalið félagsins eftir að Óskar Hrafn Þorvaldsson tók við þjálfun liðsins. KR bjargaði sér frá falli í síðustu umferð í Bestu deild karla á síðasta ári og kvennaliðið var í næst efstu deild.

Laun og gjöld tengd því hækka hressilega á milli ára, fóru úr 227 milljónum í 312 milljónir á síðasta ári. Þá seldi KR leikmenn fyrir tæpar 70 milljónir. Alexander Rafn Pálmason sem verður 16 ára í sumar var seldur til Nordsjælland á síðasta ári og skilar líklega stærstu summunni þarna inn. Þá borgaði KR umboðsmönnum 3,1 milljón á síðasta ári.

Rekstrargjöld KR voru 485 milljónir á síðasta ári og hækka um tæpar 120 milljónir á milli ára.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Í gær

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá