
Liverpool hafði samband við menn tengda Real Madrid á dögunum til að spyrjast fyrir um starf Xabi Alonso hjá félaginu.
Spænska blaðið AS fjallar um málið, en það er farið að hitna undir Arne Slot í stjórastólnum á Anfield.

Alonso hefur lengi verið orðaður við Liverpool og er hann án starfs eftir að hafa verið látinn fara frá Real Madrid í vetur. Áður hafði hann gert frábæra hluti með Bayer Leverkusen.
Liverpool virðist enn horfa til hans en AS segir að félagið muni ekki reka Slot fyrir annan stjóra en Alonso. Sé hann ekki fáanlegur muni Slot halda starfi sínu, í bili hið minnsta.
Slot gerði Liverpool að Englandsmeistara fyrir ári síðan en liðið hefur spilað langt undir væntingum á þessari leiktíð.