
Kobbie Mainoo hefur skrifað undir nýjan samning við Manchester United sem gildir til ársins 2031.
Fréttirnar hafa legið í loftinu en United hefur nú staðfest þær. Skrifaði hann undir á æfingasvæði United, Carrington, í gær.
„Manchester United hefur alltaf verið heimili mitt. „Ég er staðráðinn í að hjálpa félaginu að berjast um stóra titla á næstu árum,“ segir Mainoo.
Mainoo, sem er 21 árs, var mjög ungur kominn í stórt hlutverk með aðalliði United en var svo settur í kælingu af Ruben Amorim. Eftir að Portúgalinn var rekinn og Michael Carrick tók við hefur hann upplifað endurnýjun lífdaga.
❤️🔥 One of our own.
Kobbie Mainoo is here to stay 🔏 pic.twitter.com/GQi2uJaqQG
— Manchester United (@ManUtd) April 30, 2026