
Fótboltafréttamaðurinn Fabrizio Romano birti færsluí gær sem hefur vakið athygli og ýtir undir orðróm um möguleg félagaskipti Julian Alvarez til Arsenal.
Romano birti mynd af Alvarez ásamt knattspyrnustjóra Arsenal, Mikel Arteta, eftir 1-1 jafntefli Arsenal og Atletico Madrid í Meistaradeildinni í gær.
Alvarez skoraði jöfnunarmarkið úr vítaspyrnu í leiknum og átti góðan leik í heildina, en um fyrri leik liðanna í undanúrslitum var að ræða.
Alvarez hefur mikið verið orðaður við Arsenal síðustu mánuði og sem fyrr segir vakti færslan því athygli.
Þetta má sjá hér að neðan.
🫂 Mikel Arteta and Julián Álvarez at full time. pic.twitter.com/29c1KLPdUz
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) April 30, 2026