
Kobbie Mainoo hefur samkvæmt fréttum framlengt samning sinn við Manchester United og er nú bundinn félaginu til ársins 2031.
Samkvæmt The Athletic fær þessi 21 árs gamli miðjumaður verulega launahækkun og verður meðal tekjuhæstu leikmanna liðsins. Talið er að grunnlaun hans verði um 135 þúsund pund á viku auk bónusa.
Mainoo hefur verið í lykilhlutverki hjá United á undanförnum mánuðum, eða eftir að Michael Carrick tók við sem bráðabirgðastjóri í kjölfar brottreksturs Ruben Amorim, en hann var kominn í frystikistuna undir stjórn Portúgalans, þrátt fyrir að hafa komið eins og stormsveipur inn í lið United ungur að árum.
Gert er ráð fyrir að félagið staðfesti samninginn formlega á næstu dögum.