
Manchester United hefur mikinn áhuga á tyrkneska varnarmanninum Ferdi Kadioglu, sem leikur með Brighton.
Þetta kemur fram í miðlum í heimalandi leikmannsins, en United hefur fylgst náið með kappanum og gæti gert tilboð í sumar.
United er talið leita að langtímalausn í vinstri bakvarðarstöðunni þar sem Luke Shaw hefur glímt mikið við meiðsli.
Það heillar United að hinn 26 ára gamli Kadioglu hefur þegar sannað sig í ensku úrvalseildnni og ætti því að vera klár að koma inn í liðið strax.