

Arsenal heldur áfram að skoða möguleika á að styrkja sóknarlínu sína og hefur áhugi félagsins á Victor Osimhen fengið aukinn byr.
Samkvæmt erlendum miðlum var íþróttastjóri Arsenal, Andrea Berta, staddur í Istanbúl á sunnudag þar sem hann fylgdist með leik Galatasaray.
Ferðin hefur vakið miklar vangaveltur um að Arsenal sé að skoða Osimhen sérstaklega, en nígeríski framherjinn hefur lengi verið orðaður við félagið.
Osimhen, sem er 27 ára, er talinn einn eftirsóttasti framherji Evrópu og gæti orðið eitt stærsta nafn sumargluggans ef af félagaskiptum verður.