Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir hefur verið ráðin yfirmaður hæfileikamótunar kvenna og landsliðsþjálfari U-15 kvenna frá og með 1.maí n.k.
Gunnhildur Yrsa er einnig í þjálfarateymi A-landsliðs kvenna og mun hún áfram sinna því starfi auk annarra verkefna sem hún hefur verið í síðan hún kom til KSÍ.
Hún lék á sínum tíma 102 A landsleiki og skoraði í þeim 14 mörk. Gunnhildur Yrsa útskrifaðist á dögunum með KSÍ A þjálfararéttindi.
KSÍ fagnar því að fá að njóta krafta Gunnhildar Yrsu í sínum störfum áfram og hlakkar til að sjá hana takast á við ný verkefni.