fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Besta deildin: KR heldur áfram að skemmta fólki – Vörn ÍBV míglak í heimsókn til Fram

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 27. apríl 2026 19:51

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Markaveisla var í tveimur leikjum 4. umferðar Bestu deildar karla í kvöld þar sem bæði Fram og KR fögnuðu sannfærandi sigrum.

Fram valtaði yfir ÍBV með 5-1 sigri á heimavelli. Atli Þór Jónasson var í aðalhlutverki með tvö fyrstu mörk heimamanna á 11. og 32. mínútu.

Þorri Stefán Þorbjörnsson bætti við þriðja markinu snemma í síðari hálfleik áður en Róbert Elís Hlynsson minnkaði muninn fyrir Eyjamenn. Kyle McLagan svaraði skömmu síðar með fjórða marki Fram og innsiglaði heimaliðið stórsigur.

Á Meistaravöllum hafði KR betur gegn FH í fjörugum leik, 4-2. Aron Sigurðarson kom KR yfir strax á 6. mínútu en FH jafnaði tveimur mínútum síðar með marki frá Tómasi Orra Róbertssyni.

KR svaraði með þremur mörkum í röð frá Eiði Gauta Sæbjörnssyni, Amin Cosic og Aroni á ný. Tómas Orri minnkaði muninn fyrir FH fyrir hlé en nær komust Hafnfirðingar ekki.

Fram og KR taka því þrjú mikilvæg stig úr umferðinni en KR er með fullt hús stiga. Vandræði FH og ÍBV halda áfram, bæði lið eru með eitt stig og mígleka inn mörkumm

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho
433Sport
Í gær

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?
433Sport
Í gær

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina
433Sport
Í gær

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“
433Sport
Í gær

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði