

Enska landsliðsmiðvörðurinn Harry Maguire hefur tapað sex ára lagalegri baráttu við að hreinsa nafn sitt vegna slagsmála sem áttu sér stað í fríi á grísku eyjunni Mykonos árið 2020.
Maguire, sem er 32 ára og leikmaður Manchester United, var handtekinn eftir átök við lögreglu á eyjunni. Dómur í málinu hefur nú verið staðfestur af áfrýjunardómstóli eftir margra ára tafir í réttarkerfinu.
Þó Maguire geti ekki áfrýjað dómnum frekar verður lögmönnum hans heimilt að færa fram lagaleg rök fyrir æðra dómsstigi síðar.
Niðurstaðan gæti haft áhrif á möguleika hans á að vera valinn í landslið Englands fyrir Heimsmeistaramótið í sumar. Til að fá vegabréfsáritun fyrir mótið, sem fer fram í Bandaríkjunum og Mexíkó, þarf hann að gefa upp sakfellinguna.
Eftir handtökuna árið 2020 var Maguire haldið í fangaklefa í tvo daga áður en hann var leiddur fyrir dóm. Lögmenn hans fengu aðeins tvær klukkustundir til að undirbúa vörnina en Maguire neitaði sök.
Hann var þó sakfelldur fyrir líkamsárás og mútubrot og dæmdur í 21 mánaðar skilorðsbundið fangelsi. Hann áfrýjaði síðar dómnum og sneri aftur til Bretlands þar sem hann sagðist ætla að hreinsa nafn sitt.
Áfrýjunardómstóll staðfesti hins vegar sakfellinguna í dag, en refsingin var lækkuð í 15 mánuði og 20 daga skilorðsbundið fangelsi auk 1.500 evra sektar.
Maguire var ekki viðstaddur réttarhöldin þar sem hann undirbýr sig með Manchester United fyrir leik liðsins gegn Newcastle United í kvöld.
Atvikið átti sér stað þegar Maguire var á skemmtistað með eiginkonu sinni, systur og vinum. Hann hefur haldið því fram að hann hafi ekki vitað að mennirnir sem stöðvuðu hópinn væru lögreglumenn og að hann hafi óttast að þeim yrði rænt áður en átökin brutust út.