
Tino Livramento vill taka skrefið til eins af stærstu liðum Englands í sumar, samkvæmt frétt Telegraph.
Hinn 23 ára gamli Livramento er á sínu þriðja tímabili með Newcastle, en áður hafði hann heillað með Southampton.
Manchester City hefur sýnt varnarmanninum áhuga í nokkurn tíma og gætu reynt við hann í sumar, sem og fleiri lið.
Livramento, sem getur spilað bæði í hægri og vinstri bakverði, er allavega klár í næsta skref.
Samningur kappans við Newcastle rennur út eftir rúm tvö ár.