Fulham vill fá Joao Palhinha aftur til liðs við sig eftir vonbrigðardvöl hans hjá Bayern Munchen hingað til.
Daily Mail segir frá þessu, en portúgalski miðjumaðurinn gekk í raðir Bayern síðasta sumar frá Fulham en hefur ekki sannað sig hjá stórliðinu og verið í algjöru aukahlutverki undir stjórn Vincent Kompany.
Bayern greiddi tæpar 50 milljónir punda fyrir Palhinha síðasta sumar en er félagið opið fyrir því að losa hann. Fulham skoðar þann möguleika á að fá hann á láni, en launapakki hans gæti reynst vandamál.
Samkvæmt þessum fréttum vill Palhinha þó helst berjast fyrir sæti sínu hjá Bayern, en hann virðist ekki vera í plönum félagsins áfram.