fbpx
Föstudagur 16.janúar 2026
433Sport

Þuldi upp skuldir í Vesturbænum upp á tugi milljóna – „Líklega verst statt núna“

433
Laugardaginn 20. desember 2025 07:30

Screenshot

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sævar Þór Sveinsson, sem heldur utan um síðuna Utanvallar.is, var gestur Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni á 433.is og fór yfir fjármálahlið íþróttanna.

Það var farið yfir afleiðingar þess að falla úr Bestu deild karla og í Lengjudeildina í þættinum. Eru þær jafnvel alvarlegri fyrir stærri lið sem setja meiri peninga í starfið.

„Samstöðubætur sem lið í efstu deild fá frá UEFA eru um 35-36 milljónir á ári. Svo ertu með sjónvarpsréttinn og tölfræðiréttindin sem ÍTF heldur utan um, það er um 22 milljónir. Þessar tekjur eru því yfir 50 milljónir sem þú missir af.

Svo ferðu niður í Lengjudeildina og þá er kannski erfiðara að sannfæra styrktaraðila um að borga jafnmikið. Þú ert minna í sjónvarpinu og þess háttar. Þú ert að fara að tapa tekjum á ýmsum vígstöðvum,“ sagði Sævar um málið.

„Svo ertu með launaháa leikmenn og þá er þetta spurning um að þrauka eitt tímabil í Lengjudeildinni eða selja þá, og þá ertu sennilega að gera það ódýrt.“

KR var nefnt í þessu samhengi, þetta stórlið var afar nálægt því að fara niður í sumar.

„Reksturinn hjá KR mætti vera töluvert betri. Þeir eru með þó nokkuð af skuldum, 20 milljóna króna yfirdrátt og háir vextir af því, svo er langtímalán upp á 10 milljónir. Skuldahlutfallið af eignum er hátt.

Ef við tölum um þessi hefðbundnu stórlið á Íslandi er KR líklega verst statt núna. Þetta er lið sem vill vera þarna uppi og leikmannahópurinn og eyðslan í takt við það. En árangurinn hefur ekki verið eftir því og því spíralast þetta svona,“ sagði Sævar um Vesturbæjarstórveldið.

Þátturinn í heild er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Fjármáladeild United á nálum – Stefnir í mígandi tap á rekstrinum á þessu tímabili

Fjármáladeild United á nálum – Stefnir í mígandi tap á rekstrinum á þessu tímabili
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sjá ekki not fyrir leikmann Arsenal og vilja senda hann til baka

Sjá ekki not fyrir leikmann Arsenal og vilja senda hann til baka
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Segir hann fullkominn fyrir United og nefnir hvers vegna

Segir hann fullkominn fyrir United og nefnir hvers vegna
Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Bruno Fernandes áfram í bili en skoðar sín mál í sumar

Bruno Fernandes áfram í bili en skoðar sín mál í sumar
433Sport
Í gær

Horfa til Wolves eftir sölu á enska landsliðsmanninum

Horfa til Wolves eftir sölu á enska landsliðsmanninum
433Sport
Í gær

Moyes vill fá sóknarmenn í janúar og þessi tvö nöfn eru á blaði

Moyes vill fá sóknarmenn í janúar og þessi tvö nöfn eru á blaði