fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Segir táninginn hafa gert risastór mistök með valinu – ,,Mun aldrei finna sömu ást og hjá okkur“

Victor Pálsson
Föstudaginn 19. desember 2025 20:30

Yamal og fyrrverandi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum leikmaðurinn Mustapha Hadji er staðráðinn í því að Lamine Yamal hafi gert mistök með því að ákveða að spila fyrir spænska landsliðið.

Yamal hafði val á milli Spánar og Marokkó og valdi það fyrrnefnda en hann er leikmaður Barcelona.

Um er að ræða einn allra efnilegasta leikmann heims sem spilaði sinn fyrsta aðalliðsleik aðeins 15 ára gamall.

Hadji er vonsvikinn með ákvörðun Yamal en hann er fyrrum leikmaður Marokkó og liða eins og Aston Villa og Coventry.

,,Þó hann hafi ákveðið að velja Spán þá mun hann aldrei finna fyrir sömu ást þar og hjá okkur. Það er leiðinlegt að hann hafi ekki valið okkur,“ sagði Hadji.

,,Ef hann hefði valið Marokkó þá væru hlutirnir öðruvísi, það er mjög sorglegt. Ég las nýlega í spænskum miðlum að þeir væru spenntari fyrir Pedri en Yamal, það þýðir að hann hafi gert mistök.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho
433Sport
Í gær

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu

Bellamy virðist ekki spenntur fyrir starfinu
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?
433Sport
Í gær

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina

Sleppa við langa ferð með Herjólfi og taka þyrlu til Eyja um helgina
433Sport
Í gær

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“

Baunar á yfirvöld í kjölfar þess að skjali var lekið – „Ég veit að það dró pabba minn til dauða“
433Sport
Í gær

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði

Segir að Alonso sé til í að taka við enska liðinu með einu skilyrði