

Adidas hefur gefið út nýja F50 Salah skó sem heiðra Mohamed Salah í aðdraganda Afríkukeppninnar. Skórnir eru hannaðir til að fagna frammistöðu hans bæði hjá Liverpool og landsliði Egyptalands.
Skórnir eru hvítir með sandlituðum mynstrum sem vísa til Egyptalands og bakgrunns Salah en einnig má sjá glitta í gull.
Salah hefur verið mikið í umræðunni undanfarið en hvort hann spili með Liverpool á næsta ári er alls ekki víst.
Hann er þó talinn vera einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar síðustu 10 ár eða svo og berjast margir fyrir því að hann sé jafnvel einn sá besti í sögunni.
Adidas hefur ákveðið að heiðra Salah með glænýjum skóm sem hafa hlotið virkilega góð viðbrögð aðdáenda.
