
Ruben Amorim mætti pirraður á fréttamannafund fyrir leik Manchester United gegn Wolves og svaraði ítrekað dpurningum um þá ákvörðun að láta Kobbie Mainoo sitja á bekknum.
Mainoo, sem er 20 ára, hefur enn ekki byrjað leik í úrvalsdeildinni á tímabilinu og kom ekki við sögu í 1-1 jafntefli gegn West Ham á í gær.
Amorim viðurkenndi að hætta væri á að leikmaðurinn yrði svekktur, en sagði að einu forsendur hans væru að velja besta byrjunarliðið hverju sinni. Hann benti á að stöðurnar sem Mainoo gæti leyst væru skipaðar mönnum eins og Manuel Ugarte, Casemiro og Bruno Fernandes.
Þegar hann var spurður hvort Afríkumót landsliða gæti opnað fyrir tækifæri Mainoo svaraði Amorim að það færi einfaldlega eftir standi leikmannsins. „Ef það er besta lausnin fyrir liðið, þá spila ég honum.“
Amorim mótmælti einnig fullyrðingum um að hann vantreysti ungum leikmönnum félagsins. Hann nefndi Mainoo sjálfan sem dæmi og hafnaði því að hann ætti að setja inn 18 ára gamlan Shea Lacey.
Brot af fundinum má sjá hér neðar.
🚨 Rúben Amorim on Kobbie Mainoo: “I understand what you are saying. You love Kobbie”.
“He starts for England, but that doesn’t mean I need to put Kobbie on when I feel I shouldn’t put Kobbie on”.
🎥 @BeanymanSports pic.twitter.com/JMzqytrREu
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) December 5, 2025