fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
433Sport

Fékk lítið af símtölum eftir að hafa lent í skelfilegu bílslysi – ,,Egóið sagði einfaldlega nei“

Victor Pálsson
Mánudaginn 2. mars 2026 20:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Michail Antonio lenti í hræðilegu bílslysi árið 2024 en þessi 35 ára gamli leikmaður gerði garðinn frægan með West Ham í efstu deild á Englandi.

Antonio er markahæsti leikmaður í sögu West Ham í efstu deild en hann gerði 68 mörk en spilar í dag í Katar með Al-Sailiya.

Englendingurinn reyndi lengi að finna sér nýtt félag heima fyrir og æfði með fjölmörgum félögum eftir slysið en það reyndist erfitt að fá samningstilboð sem hentaði bæði honum og hans fjölskyldu.

Mörg félög voru á eftir þessum öfluga sóknarmanni sem vildi þó ekki færa sig niður um deild og var í erfiðleikum með að finna sér félag í efstu deild á Englandi á ný – ekkert félag virtist hafa áhuga á að taka sénsinn á þessum tímapunkti.

Antonio segist hafa fengið tilboð frá félögum á Englandi en ekki liðum í hæsta gæðaflokki sem er líklega ástæðan fyrir því að hann endaði í Sádi.

Hann tekur fram að ákveðin félög hafi neitað að horfa til sín eftir slysið en egóið spilaði einnig stóra rullu – hann telur sig hafa sannað nógu mikið til að fá samningstilboð frekar en að þurfa að sanna sig á æfingum hjá því félagi.

,,Ég er enn með þau gæði sem ég var með fyrir tíu árum síðan í enslku úrvaldeildinni og það sannar sig því allir stjórar voru að senda mér samningstilboð eftir að ég hafði mætt á æfingar hjá félaginu,“ sagði Antonio.

,,Það voru hins vegar stjórar sem neituðu að horfa á mig eftir slysið og meiðslin og margir eigendur voru einnig á móti þessu. Í lok dags þá eru þetta peningar eigandans þó að þjálfarinn gæti viljað þig.“

,,Umboðsmaðurinn minn hringdi reglulega í mig og það sama gerðist trekk í trekk – þessi félög vildu fá mig á æfingar fyrst. Egóið sagði einfaldlega nei, ég er ekki að koma á æfingar til að sanna mig.“

,,Þið getið séð mig spila með Jamaíka og þið hafið séð mig spila undanfarin tíu ár og ég ætti ekki að þurfa að sanna mig til að fá samningstilboð. Félögin voru á sama máli, ef þú æfir ekki þá viljum við þig ekki.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar
433Sport
Í gær

Grátlegt fyrir Heimi og félaga

Grátlegt fyrir Heimi og félaga
433Sport
Í gær

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah