fbpx
Fimmtudagur 05.mars 2026
Fréttir

Hótaði öðrum lífláti og stjórnaði hjólabát undir áhrifum – „Ég mun birtast einn daginn og brjóta hvert bein í andlitinu á þér fyrir framan börnin þín“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 2. mars 2026 19:00

Héraðsdómur Suðurlands er á Selfossi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður hlaut 30 daga skilorðsbundinn dóm til tveggja ára, var sviptur ökuréttindum til þriggja ára og skipstjórnarréttindum í þrjá mánuði fyrir líflátshótanir og að stjórna hjólabát undir áhrifum. Maðurinn þarf jafnframt að greiða 530 þúsund krónur í sekt og greiða allan málsvarnarkostnað.

Í dómi Héraðsdóms Suðurlands sem féll 27. febrúar kemur fram að maðurinn var ákærður fyrir hótanir eftir að hafa, árið 2022, hótað ónefndum einstaklingi lífláti í þremur tölvupóstsendingum, sem voru til þess fallnar að vekja ótta hjá honum um líf, heilbrigði og velferð hans sjálfs og fjölskyldu sinnar, sem nánar greinir þannig:

Kl. 19:11: „Þið eruð þjófar og þið rænið börnum og misnotið þau, þið eruð

sjúkir fucking barnaníðingar…. Ég mun finna ykkur í helvíti“

Kl. 19:12: „Ég mun persónulega finna þig og drepa þig fyrir framan

fjölskylduna þína ef þú nokkurn tímann aftur rukkar mig um svo mikið sem

eina krónu.“

Kl. 19:17: „Það eru bara tveir með þínu nafni í símaskránni, ég er búinn að taka

skjáskot… Ef þú innheimtir meiri pening frá mér á meðan þið haldið barninu

mínu læstu inni á sjúkrahúsi… Mun ég koma og drepa þig fyrir framan fucking

fjölskyldu þína.. Ég mun birtast einn daginn og brjóta hvert bein í andlitinu á

þér fyrir framan börnin þín þangað til heilinn á þér springur á þau. Barnaníðings

ógeðið þitt!!!!“

Maðurinn var einnig ákærður fyrir umferðar- og siglingarlagabrot og brot gegn lögum um áhafnir skipa með því að hafa, sunnudaginn 16. júní 2024, stjórnað hjólabát, sem er þiljað farþegaskip, og ekið farþegaskipinu þaðan upp á land og að landgöngupramma á afmörkuðu athafnarsvæði á landi, óhæfur til að stjórna hjólabátnum örugglega og óhæfur til að rækja starfann á fullnægjandi hátt vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrakannabínól 5,0 ng/ml). Enn fremur með því að hafa umrætt sinn haldið úr höfn án þess að hafa, sem skipstjóri farþegaskipsins, gætt að því að hann sjálfur væri lögskráður á skipið.

Við ákvörðun refsingar var litið skýlausrar játningar ákærða og einnig til þess að langur tími leið frá því að líflátshótanirnar áttu sér stað þar til málið barst áfram, en ekki er getið í dómi nánar um hvert. Þá leið tæpt ár til viðbótar frá því málið barst lögregluyfirvöldum hérlendis þar til ákærði var boðaður til skýrslutöku.

Þótti refsing ákærða þannig hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, auk 530 þúsund króna sektar í ríkissjóð, og svipting ökuréttar í þrjú ár og skipstjórnarréttinda í þrjá mánuði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Sex Íslendingar sem tengjast fjölskylduböndum ákærðir fyrir hrottalega frelsissviptingu sem þykir vart eiga sér hliðstæðu í íslenskum rétti

Sex Íslendingar sem tengjast fjölskylduböndum ákærðir fyrir hrottalega frelsissviptingu sem þykir vart eiga sér hliðstæðu í íslenskum rétti
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Áætlun um vopnaða uppreisn í Íran sögð í vinnslu

Áætlun um vopnaða uppreisn í Íran sögð í vinnslu
Fréttir
Í gær

Brjáluð út í föður sinn og óskar honum dauða – „Það er til sérstakur staður í helvíti fyrir hann”

Brjáluð út í föður sinn og óskar honum dauða – „Það er til sérstakur staður í helvíti fyrir hann”
Fréttir
Í gær

Leiddist á borgarstjórnarfundi og fór að rífast og hella úr skálum hæðni sinnar – „Minnist á Adolf Hitler og blóðbað á spítala“

Leiddist á borgarstjórnarfundi og fór að rífast og hella úr skálum hæðni sinnar – „Minnist á Adolf Hitler og blóðbað á spítala“