

Weston McKennie er ekki á förum frá Juventus í bráð en hann hefur skrifað undir nýjan samning við félagið.
Bandaríkjamaðurinn hefur átt nokkuð undarlega tíma hjá Juventus en hann lék með Leeds í láni á síðustu leiktíð.
Miðjumaðurinn gekk í raðir Juventus 2021 en hann hafði áður spilað með Schalke í Þýskalandi.
Hann hefur spilað stóra rullu á þessu tímabili og komið við sögu í alls 37 leikjum.