fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
433Sport

Fyrrum fyrirliði United ekki mikill aðdáandi Rashford

Victor Pálsson
Mánudaginn 2. mars 2026 22:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bryan Robson, fyrrum fyrirliði Manchester United, er ekki mikill aðdáandi Marcus Rashford í dag sem spilar með Barcelona.

Rashford er uppalinn hjá United og er enn bundinn félaginu en hann leikur með Barcelona á láni út tímabilið.

Rashford hefur undanfarin tvö tímabil veirð lánaður frá United til bæði Barcelona og Aston Villa og staðið sig ágætlega.

Englendingurinn var stórkostlegur tímabilið 2022-2023 og skoraði 30 mörk í öllum keppnum en hefur verið í töluverðri lægð síðan þá.

Robson áttar sig ekki á hvað nákvæmlega er í gangi hjá þessum hæfileikaríka fótboltamanni og af hverju hann gat ekki notið sín á vellinum síðustu þrjú árin á Old Trafford.

,,Marcus Rashford sem leikmaður, ég get ekki áttað mig á honum. Þegar þú ert hjá Manchester United og allir eru að bauna á þig fyrir að vera ekki með sjálfstraust þá fer hann til Aston Villa og byrjar að njóta fótboltans á ný,“ sagði Robson.

,,Ef þú getur ekki notið þess að spila fótbolta fyrir Manchester United þá hlýtur að vera eitthvað að þér.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Gefur innsýn inn í endurhæfingu sína – Notar hjól sem vekur athygli

Gefur innsýn inn í endurhæfingu sína – Notar hjól sem vekur athygli
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Segir frá sorglegum degi í herbúðum United á dögunum

Segir frá sorglegum degi í herbúðum United á dögunum
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ólátabelgurinn Barton í haldi lögreglu – Handtekinn eftir slagsmál í golfklúbbi

Ólátabelgurinn Barton í haldi lögreglu – Handtekinn eftir slagsmál í golfklúbbi
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Segir Rúnar Kristins hafa þurft að slökkva elda á síðasta ári – „Been there done it, bought the T-shirt. Haldiði kjafti“

Segir Rúnar Kristins hafa þurft að slökkva elda á síðasta ári – „Been there done it, bought the T-shirt. Haldiði kjafti“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Eddie Howe horfir í gamla félagið

Eddie Howe horfir í gamla félagið