

Paul Scholes gagnrýndi harðlega meðferð Ruben Amorim á Kobbie Mainoo og sagði það vera kjaftæði að Englendingurinn fái ekki tækifæri í liði sem getur ekki stjórnað fótboltaleik.
Scholes, 51 árs og ein stærsta goðsögn Manchester United, hrópaði upp yfir ákvörðunum Amorim eftir að þjálfarinn hélt því fram að Mainoo væri byrjunarliðsmaður í hans huga, þrátt fyrir að hafa aðeins byrjað einn leik á tímabilinu.
„Ég lít á hann sem byrjunarliðsmann eins og hina,“ sagði Amorim síðastliðinn föstudag.

„Ég þarf bara að velja og hingað til hefur Kobbie ekki verið valinn. Ég vil bara vinna leiki; mér er sama hver spilar.“
Mainoo sat þó á bekknum á ný á fimmtudagskvöld þegar United reyndi að halda 1–0 forystu gegn West Ham, og þá sprakk Scholes. Hann skrifaði á Instagram:
„Bullshit. Það er verið að skemma ferilinn. Hann fær ekki að spila í liði sem ræður ekki við að stjórna leik. Ég hata að sjá uppalda leikmenn fara, en líklega væri það best fyrir hann núna. Nóg er nóg.“
Umræðan um Mainoo hefur harðnað á meðal stuðningsmanna sem telja að 20 ára miðjumaðurinn eigi skilið mun stærra hlutverk.