

Mikel Arteta ræddi liðsfréttir Arsenal fyrir næsta leik og sagðist lítið geta staðfest á meðan verið væri að meta ástand leikmannanna. Arsenal heimsækir Aston Villa í hádeginu á morgun.
Um Declan Rice sagði hann. „Við sjáum til. Allar spurningarnar sem ég fæ munu fá sömu svarið, við eigum æfingu í dag og hver klukkutími skiptir máli til að sjá hvort leikmennirnir verði til taks.“
Rice fór meiddur af velli í sigri á Brentford í vikunni.
Arteta staðfesti að meiðsli Cristhian Mosquera væru alvarlegri en hjá öðrum. „Mosquera er flóknara mál. Við förum í frekari rannsóknir í dag til að sjá hvar við stöndum.“
Aðspurður um William Saliba og Leandro Trossard svaraði Arteta. „Þetta eru spurningar um nokkra daga hjá þeim báðum.“
Arsenal glímir nú við fjölmörg meiðsli í miðri törn og eru stuðningsmenn orðnir uggandi eftir að nokkrir lykilmenn hafa bæst á sjúkralistann á síðustu vikum.