Það virðist sem svo að Jhon Duran sé á förum frá Al-Nassr í sumar og er hann ansi eftirsóttur.
Þessi 21 árs gamli framherji gekk í raðir sádiarabíska félagsins í janúar frá Aston Villa fyrir 64 milljónir punda. Sagan segir þó að honum líði illa í Sádí og vilji burt.
Nú segja tyrkneskir miðlar að stórlið Fenerbahce þar í landi vilji fá Duran að láni og sé til í að greiða vel fyrir. Félagið er reiðubúið að taka yfir laun hans, sem nema vel yfir 300 þúsund pundum á viku, auk þess að greiða um 3 milljónir punda í lánsfé aukalega til Al-Nassr.
Duran hefur einnig verið orðaður við endurkomu til Englands, til að mynda til West Ham, sem reyndi að kaupa hann af Villa í janúar. Einnig hafa Fulham og Wolves verið nefnd á nafn í samhengi við framtíð Kólumbíumannsins.