fbpx
Miðvikudagur 12.nóvember 2025
433Sport

Vildi hætta í vinnunni til að hjálpa drottningunni – ,,Ekki segja neitt, þetta er Buckinghamhöll“

Victor Pálsson
Mánudaginn 1. ágúst 2022 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Emmanuel Eboue, fyrrum leikmaður Arsenal, er þekktur fyrir það að vera mikill grínisti og vakti oft athygli sem leikmaður.

Eboue var talinn mjög öflugur bakvörður á sínum tíma en hann lék með Arsenal í sjö ár.

Eboue og aðrir leikmenn Arsenal fengu að hitta Elísabetu Englandsdrottningu á sínum tíma og tókst Eboue að fá hana til að hlæja eftir fyrstu kynni.

Thierry Henry, þáverandi liðsfélagi Arsenal, óttaðist að Eboue yrði liðinu til skammar en annað kom á daginn.

,,Við fórum í heimsókn og Henry sagði við mig: ‘Gerðu það Emmanuel, ekki segja neitt, þetta er Buckinghamhöll, þetta er heimili drottningarinnar, ekki gera neitt,“ sagði Eboue.

,,Ég svaraði og sagði honum ekki að hafa áhyggjur. Svo kom drottningin inn og tók í hendina á öllum leikmönnunum. Eftir að hún var búinn að því tók ég eftir hundunum hennar og sagði: ‘Fröken, fröken.’

,,Hún sneri sér við og spurði hvernig ég hefði það. Ég sagðist vera í lagi en að ég hefði ekki áhuga á að vera fótboltamaður lengur. Ég vildi sjá um hundana hennar, sjá um að fara út með þá að labba, baða þá, fæða þá, ég vildi sjá um þá.“

,,Í alvöru talað þá fór drottningin að hlæja rétt eins og Prins Philip. Allt liðið fór að hlæja.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Yfir þúsund leikmenn í Tyrklandi settir í bann fyrir veðmálabrot – 27 leikmenn í efstu deild

Yfir þúsund leikmenn í Tyrklandi settir í bann fyrir veðmálabrot – 27 leikmenn í efstu deild
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Gunnar kallar eftir breytingum í samstarfi skóla og íþrótta á Íslandi – „Ég er að tala um ef Kalli brókar þrjá inni á baði, auðvitað á það ekki að fá viðgangast“

Gunnar kallar eftir breytingum í samstarfi skóla og íþrótta á Íslandi – „Ég er að tala um ef Kalli brókar þrjá inni á baði, auðvitað á það ekki að fá viðgangast“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Fljótasti maður sögunnar grátbiður Ferdinand að tala við leikmenn United um þetta

Fljótasti maður sögunnar grátbiður Ferdinand að tala við leikmenn United um þetta
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Framherjinn eftirsótti hafnaði gylliboði frá Rússlandi

Framherjinn eftirsótti hafnaði gylliboði frá Rússlandi
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ósætti á bak við tjöldin – Gæti fengið sparkið fljótlega

Ósætti á bak við tjöldin – Gæti fengið sparkið fljótlega
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Valtý heitt í hamsi og spyr hvort Íslendingar telji sig öðrum fremri – „Maður er búinn að heyra þessa skýringu allt of oft“

Valtý heitt í hamsi og spyr hvort Íslendingar telji sig öðrum fremri – „Maður er búinn að heyra þessa skýringu allt of oft“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Real Madrid setur sig í stellingar þar sem illa gengur að semja við Vinicius

Real Madrid setur sig í stellingar þar sem illa gengur að semja við Vinicius
433Sport
Í gær

Rooney á því að þetta séu kaup tímabilsins – „Eftir allt sem hann gekk í gegnum“

Rooney á því að þetta séu kaup tímabilsins – „Eftir allt sem hann gekk í gegnum“
433Sport
Í gær

Ummæli hans um eiginkonu vinar síns rötuðu upp á yfirborðið – „Ég vissi af þessu“

Ummæli hans um eiginkonu vinar síns rötuðu upp á yfirborðið – „Ég vissi af þessu“