Mauro Icardi, leikmaður Inter Milan, er til sölu þessa stundina en félagið reynir að losa hann af launaskránni.
Icardi fær ekki að ferðast með Inter til Asíu í æfingaferð og er farinn heim til Ítalíu eftir að hafa æft með félaginu í Sviss.
Inter segir að sú ákvörðun hafi verið sameiginleg en Icardi er hins vegar alls ekki sammála því.
La Repubblica greinir frá því að Icardi hóti nú að fara í verkfall en hann á tvö ár eftir af samningi sínum við félagið.
,,Ég verð hér næstu tvö árin, tek við laununum og ég fer ekki fet,“ er haft eftir Icardi.
Inter reynir að selja Icardi til að fjármagna kaup á framherjanum Romelu Lukaku sem spilar með Manchester United.