Eins og kom fram í dag þá hefur Rafael Benitez yfirgefið lið Newcastle og mun ekki stýra liðinu áfram.
Það eru ekki góðar fréttir fyrir Newcastle en Benitez náði mjög góðum árangri með liðið eftir að hafa fengið takmarkaða hjálp frá stjórn félagsins.
Nú er talað um það hvaða menn gætu tekið við af Benitez og eru nokkur nöfn nefnd til sögunnar.
Eitt nafnið er Jose Mourinho, fyrrum stjóri Chelsea og Manchester United sem er án félags.
Mourinho er einn sá líklegasti til að taka við en hann vill mikið snúa aftur fyrir næstu leiktíð.
Einnig eru þeir Chris Hughton og Garry Monk orðaðir við starfið en Hughton var rekinn frá Brighton fyrr á árinu og Monk yfirgaf Birmingham.