Mo Salah, leikmaður Liverpool, ætti að yfirgefa Liverpool ef hann fær tækifæri á að semja við Barcelona á Spáni.
Þetta segir Samuel Eto’o, fyrrum leikmaður Barcelona en spænska deildin er sú sterkasta í heiminum að hans mati.
Salah hefur nú þegar gert það gott á Ítalíu og á Englandi en á eftir að reyna fyrir sér á Spáni.
,,Ef Salah fær tækifæri á að spila í bestu deild heims, sem er spænska deildin, þá verður hann að skrifa undir hjá Barcelona,“ sagði Eto’o.
,,Mo er með allt sem til þarf svo að hann geti orðið einn af bestu leikmönnum heims.“