Viðar Örn Kjartansson hefur byrjað vel í Svíþjóð en hann samdi við lið Hammarby fyrr á árinu.
Viðar gekk í raðir Hammarby á láni frá FC Rostov í Rússlandi þar sem tækifærin voru af skornum skammti.
Framherjinn leikur nú með Hammarby gegn Östersund en staðan er 3-0 fyrir heimaliðinu í hálfleik.
Viðar skoraði annað mark Hammarby í leiknum og var það fjórða deildarmark hans fyrir liðið.
Landsliðsmaðurinn kláraði færi sitt virkilega vel eins og sjá má hér.
Selfyssingurinn heldur áfram að skora í Svíþjóð. pic.twitter.com/krJGbzMNmD
— Íslendingavaktin (@Islendingavakt) 14 May 2019