

Lionel Messi er einn allra besti leikmaður heims og er af flestum talinn vera sá besti í dag.
Messi skoraði tvö mörk í gær er lið Barcelona vann Liverpool 3-0 í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Philippe Coutinho lék með Barcelona í gær en var tekinn af velli í síðari hálfleik.
Stuðningsmenn heimaliðsins bauluðu þá á Brasilíumanninn og var Messi alls ekki sáttur með hegðun þeirra í viðureigninni.
,,Það er mjög ljótt að þeir skuli baula á liðsfélaga minn eins og þeir gerðu,“ sagði Messi.
,,Við erum allir saman í þessu. Við verðum að standa saman því við erum nálægt markmiðinu.“
,,Við vorum svo nálægt því að skora fjórða markið. 3-0 eru mjög góð úrslit en þetta er ekki búið því við heimsækjum völl þar sem stuðningsmennirnir standa við bakið á sínu liði.“